Menntadeild Landspítala stóð í júní 2018 fyrir sameiginlegu námskeiði fyrir hjúkrunarnema á 3. ári og læknanema á 4. og 5. ári. Á námskeiðið mættu 83 áhugasamir nemar. Á dagskrá var hermi- og færniþjálfun, með það að markmiði að undirbúa nemana sem best undir krefjandi sumarstörf. Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Berglindi Chu, Katrínu Blöndal og Valdísi Önnu Garðarsdóttur við kennslu.
Leit
Loka