Enn og aftur komu Svölurnar færandi hendi á Grensás. Þær mættu í júníbyrjun 2018 og gáfu 26 sjónvörp inn á allar sjúkrastofurnar. Áður hafa þær gefið baðstóla og húsgögn í setustofu sem nú er kölluð Svöluhreiður. Þeim voru færðar innilegar þakkir fyrir rausnarskapinn og gjafirnar munu vel nýtast.
Leit
Loka