Mikið álag er nú á Landspítala, einkum bráðamóttöku vegna mikils fjölda sjúklinga sem leitað hefur til spítalans síðustu daga. Á bráðamóttöku Landspítala er sjúklingum forgangsraðað eftir bráðleika.
Við þær aðstæður sem nú eru á spítalanum má gera ráð fyrir að þeir sem ekki eru í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina á Smáratorgi að aflokinni forskoðun. Flestar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu bjóða opna síðdegismóttöku og Læknavaktin á Smáratorgi er opin til kl. 23:00.