Vigdís Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítala til fimm ára frá og með 1. júní 2018.
Vigdís er hjúkrunarfræðingur að mennt með framhaldsnám í stjórnun frá Royal College of Nursing í London og meistarapróf í verkefnastjórnun (MPM) frá verkfræðideild Háskóla Íslands.
Vigdís hefur starfað á Landspítala um margra ára skeið. Eftir útskrift starfaði Vigdís á gjörgæsludeildinni í Fossvogi og að loknu námi í verkefnastjórnun var hún fyrst á gæðadeild Landspítala og síðan sem verkefnastjóri á skurðlækningasviði og aðgerðasviði. Vigdís hefur verið staðgengill framkvæmdastjóra beggja sviðanna auk þess sem hún hefur tekið virkan þátt í umbótastarfi Landspítala og verið verkefnastjóri við Hringbrautarverkefnið.