Rannsókn sem hefur að markmiði að varpa ljósi á heilsufar og færni eldra fólks sem býr sjálfstætt en nýtur þjónustu heimahjúkrunar fékk styrk Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala sem afhentur var 23. maí 2018. Skilgreina á breytingar á þessum hópi yfir tólf ára tímabil, hverjir eru forspárþættir um vanlíðan aðstandenda í umönnunarhlutverki og hverjir eru forspárþættir um flutning á hjúkrunarheimili. Niðurstöðurnar geta nýst öðrum fræðasviðum og varpað betra ljósi á þarfir og möguleg úrræði fyrir bæði þjónustuþega og aðstandendur þeirra.
Í umsögn matsnefndar kemur fram að rannsóknin falli vel að markmiðum styrkveitanda, rannsóknarspurning sé markviss og hagnýt, rannsóknin vísindalega vel úr garði gerð og markmið raunhæf. Verkefnið geti svarað áhugaverðum spurningum og stuðlað að myndun nýrrar þekkingar sem nýtist stórum hópi eldri einstaklinga.
Kristín Björnsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er leiðbeinandi Ingu Valgerðar Kristinsdóttur, sérfræðings í heimahjúkrun og doktorsnema við hjúkrunarfræðideild heilbrigðissviðs Háskóla Íslands, sem vinnur að rannsókninni. Styrkurinn eru veittur til doktorsnáms í öldrunarfræðum í tengslum við Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ).
Þetta er tólfti styrkurinn sem Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala afhendir en styrkirnir eru til þriggja ára og einskorðaðir við doktorsnema á öldrunarfræðasviði þar sem verkefni sé unnið í húsakynnum RHLÖ. Við mat á umsóknum eru fengnir utanaðkomandi sérfræðingar. Í ár voru í dómnefnd Guðný Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri rannsókna Hjartaverndar, Steinunn Hrólfsdóttir, dósent við félagsráðgjafardeild HÍ og Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir.
Styrktarsjóður Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala hefur að markmiði að stuðla að þverfaglegum öldrunarrannsóknum við RHLÖ. Auglýstur verður einn doktorsnemastyrkur fyrir janúar 2019. Doktorsnemar eða leiðbeinendur sem eru í rannsóknum sem tengjast öldrun geta sótt um styrkina. Pálmi V. Jónsson yfirlæknir er formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala. Ólöf Guðný Geirsdóttir er verkefnastjóri RHLÖ.
Rannsóknarstofnun Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ)