Ættingjar og vinir Dýrleifar Kristjánsdóttur hjúkrunarfræðings og lögfræðings, sem lést árið 2012, hafa fært bráðageðdeild 32C á Landspítala að gjöf 2,2 milljónir króna. Gjöfin var afhent síðasta vetrardag í apríl 2018. Féð fór í kaup á mjög fallegu og veglegu sófasetti sem prýðir nú setustofu deildarinnar og á ljósmyndum eftir ljósmyndarann Ester Magnúsdóttur sem voru sérvalin inn á deildina til að fegra umhverfið. Með þessu vildu gefendurnir minnast Dýrleifar og styðja mikilvægt starf deildarinnar.
Leit
Loka