Árlegur fundur Nordic Network of Fetal Medicine (NNFM) var haldinn í Reykjavík dagana 3. og 4. maí 2018 þar sem komu saman norrænir fæðingarlæknar og ljósmæður. Tengslanetið (network) er ungt en þetta var fjórði fundur hópsins. Haldin var sérstök dagskrá fyrir unga vísindamenn sem kynntu vinnu sína vinnu og verðlaun voru í boði. Sex íslenskir nemar tóku þátt, fjórir læknanemar og tveir doktorsnemar í lyfjafræði. Þrír nemanna höfðu rétt lokið við kynningu á BS-verkefnum sínum deginum áður og fengu tækifæri til að kynna verkefnin sín á ensku fyrir þennan hóp.
Ásdís Björk Gunnarsdóttir: “Central Nervous System Defects diagnosed in utero and after birth in Iceland 1992-2016”.
Berglind Gunnarsdóttir: “Congenital cardiac anomalies diagnosed prenatally and during the first year of life 2014– 2017”.
Brynjar Guðlaugsson: “RhD antibodies in pregnancy in Iceland during the period of 1996-2015”.
Tijana Drobnjak, doktorsnemi í lyfjafræði: “Functional properties and mechanism of action of Placental Protein 13 (PP13)
Helga Helgadóttir, doktorsnemi í lyfjafræði: “Vasodilatation of aspirin on resistant arteries from nongravid vs. gravid rats.
Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, 6. árs læknanemi: “The majority of early term elective cesarean sections can be postponed.”
Þóra Steingrímsdóttir prófessor fór fyrir dómnefndinni en fulltrúar allra Norður- og Eystrasaltslandanna áttu sæti í nefndinni. Gefin voru stig fyrir flutning, frumleika, uppsetningu rannsóknar, vísindalegt gildi, ályktanir og hvert mikilvægi verkefnisins er í heild.
Myndir:
- Nemarnir sex sem kynntu verkefni sín. Lengst til vinstri er Helga Helgadóttir í pontu, þá Berglind Gunnarsdóttir, Tijana Drobnjak, Brynjar Guðlaugsson, Ásdís Björk Gunnarsdóttir og Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir.
- Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, verðlaunahafi í hópnum "Young Investigator" á fundi Nordic Network of Fetal Medicine, sem haldinn var í Reykjavík dagana 3. og 4. maí 2018. Hún hlaut að launum 60.000 króna gjafabréf frá 66°N.