Þórgunnur Ársælsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir bráðateymis geðsviðs Landspítala frá 1. apríl 2018 til næstu fimm ára.
Þórgunnur lauk námi í læknisfræði 1992 og sérnámi í geðlæknisfræði árið 2005 auk tveggja ára sérnáms í hugrænni atferlismeðferð. Hún hefur unnið sem sérfræðingur í göngudeild geðsviðs frá 2006 og í ADHD teymi fullorðinna frá 2013. Þórgunnur er einnig menntaður jógakennari og kenndi jóga fyrir starfsfólk á Landspítala um fimm ára skeið. Hún er formaður Geðlæknafélags Íslands.