Frá erfða- og sameindalæknisfræðideild:
Svör við DNA rannsóknum frá tilvísunarrannsóknarstofum eru nú birt í glugganum Rannsóknarniðurstöður í Heilsugátt líkt og aðrar rannsóknir. Svörin eru merkt E og undir titlinum Erfðarannsókn.
Frá og með 9. apríl 2018 mun deildin hætta að senda pappírssvör frá tilvísunarrannsóknarstofum nema til þeirra lækna sem ekki hafa aðgang að Heilsugátt.
Sif Jónsdóttir einingarstjóri
Eiríkur Bríem deildarstjórn
Jón Jóhannes Jónsson yfirlæknir