Starfsmenn Landspítala og Háskólans í Reykjavík fengu fyrstu verðlaun fyrir veggspjald sitt á ráðstefnunni 2018 IEEE International Conference on Biomedical and Health Informatics (BHI) í Las Vegas í Bandaríkjunum 4.-7. mars 2018. Veggspjaldið hafði yfirskriftina Femoral Bone Gain and Loss Analysis after Total Hip Arthroplasty eða Greining efnismagnsbreytinga lærleggs eftir mjaðmaliðaskipti.
Fyrsti höfundur veggspjaldsins var Magnús K. Gíslason en hinir sem að því stóðu voru Ben Johnston, Kyle Edmunds, Halldór Jónsson jr. og Paolo Gargiulo. Þeir fengu allir heiðursskjal.
.