Ásthildur Guðjohnsen hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri á krabbameinslækningadeild 11E á Landspítala Hringbraut frá 1. mars 2018.
Ásthildur lauk BS-námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á krabbameinslækningadeild frá september það ár. Hún gegndi starfi aðstoðardeildarstjóra í eitt ár, 2014-2015. Auk þess hefur Ásthildur verið í hlutastarfi á heilbrigis- og upplýsingatæknideild Landspítala sem kínískur ráðgjafi frá 2015 og sem verkefnastjóri á gæða-og sýkingavarnardeild þar sem hún vann að ýmsum fræðslutengdum verkefnum frá 2012.