Alvarleg staða er nú á Landspítala vegna mikils fjölda sem leitað hefur til spítalans. Nú bíður fjöldi sjúklinga innlagnar á spítalanum og rúmanýting bráðalegudeilda er langt yfir það sem eðlilegt getur talist.
Spítalinn hefur aukið viðbúnað vegna þessa með því að kalla út starfsfólk og fjölga legurýmum eftir því sem kostur er. Vegna þessarar stöðu hefur framkvæmdastjórn spítalans fundað í dag, miðvikudag 24. janúar 2018, og átt í nánu samráði við nágrannasjúkrahús, hjúkrunarheimili og velferðaráðuneytið vegna stöðunnar.
Á bráðamóttöku Landspítala er sjúklingum forgangsraðað eftir bráðleika.
Við þær aðstæður sem nú eru á spítalanum má gera ráð fyrir því að þeir sem ekki eru í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað í önnur úrræði svo sem á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina á Smáratorgi að aflokinni forskoðun.
Fólk er varað sérstaklega við mikilli hálku sem valdið hefur mörgum slysum í dag.