Þriðja heftið í ritröðinni „Orðasafn í líffærafræði“ er komið út á vegum Orðanefndar Læknafélags Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar.
Nýja heftið, Æðakerfið, inniheldur ensk, íslensk og latnesk heiti á slagæðum, bláæðum og vessaæðum mannsins. Heitunum fylgir skilgreining eða lýsing á hverri æð fyrir sig.
Heftin eru fyrst og fremst ætluð nemum í heilbrigðisgreinunum en geta komið starfsmönnum í heilbrigðisgeiranum að gagni við dagleg störf.
Háskólaútgáfan sér um dreifingu og Bóksala stúdenta um sölu, eins og fyrri heftin í þessari ritröð.
Ritstjóri er Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir en aðrir í ritstjórninni eru Hannes Petersen, prófessor í líffærafræði, og Ágústa Þorbergsdóttir málfræðingur.