Gunnar Birgisson og fjölskylda færir hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala að gjöf aðgerðargleraugu til að sýna myndskeið úr aðgerðum. Gunnar var á deildinni eftir alvarlegt hjartaáfall en er á góðum batavegi og lítur björtum augum til framtíðar. Fyrir meðferðina og umönnun á deildinni er þakkað með gjöfinni.
Tækið sem gefið er nýtist bæði skurðteyminu á deildinni og nemendum í faginu. Þetta eru sérútbúin aðgerðargleraugu sem gera kleift að taka upp það sem skurðlæknirinn sér einn í hjartanu og streyma því beint til teymis á skurðstofu eða í kennslustofu. Gleraugun bæta því kennslu frá því sem nú er þar sem nemarnir geta séð það sem gert er án þess að vera inni á skurðstofunni. Nú er skurðlæknirinn sem stýrir aðgerðinni oft sá eini sem sér beint inn í hjartað og getur ekki sýnt öðrum.

Mynd: Bjarni Torfason, yfirlæknir hjarta- og brjóstholsskurðlækninga, gerði aðgerð á Gunnari Birgissyni eftir hjartaáfallið sem hann fékk. Þau hjónin Gunnar og Vigdís Karlsdóttir þakka lífgjöfina og fjölskyldan færir hjarta- og lungnaskurðdeild aðgerðargleraugu, eins og þau sem eru á myndinni, sem eiga eftir að nýtast vel, meðal annars í kennslu.