Á 64 ára afmæli Blóðbankans 14. nóvember 2017 heiðraði bankinn fjóra stofnfrumugjafa sem farið höfðu til Noregs og gefið blóðmyndandi stofnfrumur. Þeir eru:Jón Bjarni Kristjánsson, Orri Sigurður Gíslason, Ólafur Gíslason og Úlfur Bragi Einarsson.
Blóðbankinn hóf samstarf við norsku stofnfrumugjafaskrána árið 2004. Síðan hafa 10 einstaklingar farið á hans vegum og gefið stofnfrumur til sjúklinga í Noregi.