Kæra samstarfsfólk!
Síðustu vikur hafa verið þungar á spítalanum eins og við flest höfum fundið fyrir. Mikið álag er á bráðadeildum spítalans og talsverður innlagnaþungi. Væru aðstæður á spítalanum með þeim hætti sem við helst vildum væri þetta ekki vandamál heldur eðlilegar sveiflur í starfseminni sem unnt væri að bregðast við. Svo er hins vegar ekki hjá okkur - nýting legurýma spítalans á bráðadeildum er yfirleitt um og yfir 100% svo þegar „eðlilegir“ toppar myndast í starfseminni getur staðan orðið alvarleg. Þrátt fyrir að gripið hafi verið til ýmissa úrræða sem gefist hafa vel, eins og t.d. opnun Vífilsstaða, bráðalyflækningadeildar (A2) og opnun biðrýma fyrir aldraða á Vesturlandi, er augljóst að ekki gengur nógu hratt að mæta sívaxandi þörf landsmanna fyrir hjúkrunarrými þannig að álagið verður of mikið á spítalann.
Það er mikilvægt að við drögum ekki af okkur í því stöðuga umbótastarfi sem fram fer á spítalanum og leitum allra leiða til að ferlar og flæði gangi eins og best verður á kosið. Bleiki fíllinn í stofunni er þó alltaf sá sami og verður sífellt fyrirferðarmeiri. Aðstæður þeirra öldruðu einstaklinga sem til okkar leita og ekki geta snúið aftur heim að óbreyttu eru óviðunandi. Nú eru um 100 einstaklinga hjá okkur sem lokið hafa meðferð og gera ekki annað en að bíða eftir því að komast af spítalanum. Það er þyngra en tárum taki að stór hluti þeirra kemst ekki á hjúkrunarheimili heldur lýkur sínum ævivegi hjá okkur á Landspítala við aðstæður sem ekki eru við hæfi. Á sama tíma bíða aðrir sjúklingar, ungir sem aldnir, eftir innlögn á spítalann. Þetta ástand er ekki neinum boðlegt og það er umhugsunarefni að það var algerlega fyrirsjáanlegt. Það kemur varla nokkrum manni á óvart að þjóðin, þótt ung sé, eldist og hraðast fjölgar þeim sem háum aldri ná og þurfa þjónustu í samræmi við það. Uppbygging hjúkrunarheimila og annarrar þjónustu við eldra fólk á Íslandi hefur verið of hæg og við finnum öll rækilega fyrir því, sjúklingar, ættingjar og starfsfólk. Þetta er mál sem ný stjórnvöld verða að setja í algeran forgang. Það liggur lífið við.
Ekki skortir aðila í öflugri þjónustu við eldra fólk hér á landi, sem örugglega væru tilbúnir til að efla sína þjónustu enn frekar væru áherslur stjórnvalda í þá veru í fullri alvöru. Glimrandi dæmi um slíkt er Sjómannadagsráð sem fagnar um þessar mundir 80 ára afmæli sínu og 60 ára afmæli Hrafnistu. Af þessu tilefni er boðað til glæsilegrar ráðstefnu í Hörpu þann 21. nóvember og er yfirskriftin afar viðeigandi: „Lífsgæði aldraðra“. Öldrunarþjónusta, eins og heilbrigðisþjónusta, snýst einmitt um lífsgæði fyrst og síðast. Markmiðið er að bæta lífi við árin, ekki einungis árum við lífið. Að þessu höfum við á Landspítala unnið farsællega með afmælisbarninu og væntum áframhaldandi ánægjulegs samstarfs. Til hamingju, Sjómannadagsráð og Hrafnista!
Njótum helgarinnar í leik og starfi.
Páll Matthíasson