Nýlega kom hópur ungmenna úr Kvennaskólanum í Reykjavík færandi hendi með gjöf til styrktar barna- og unglingadeild Landspítala, BUGL. Haldnir voru kórtónleikar 2. nóvember 2017 og allur ágóði af þeim, tæplega 100.000 krónur, rann til BUGL, í samráði við góðgerðar- og tónlistarnefnd skólans og kórfélaga . Kórnum voru færðar bestu þakkir fyrir gjöfina.
,
Á mydninni eru fulltrúar Kvennaskólans að afhenda gjöfina. Við henni tóku Helga Jörgensdóttir, deildarstjóri göngudeildar BUGL og Sigurveig Mýrdal, deildarstjóri legudeilda BUGL.
,
Á mydninni eru fulltrúar Kvennaskólans að afhenda gjöfina. Við henni tóku Helga Jörgensdóttir, deildarstjóri göngudeildar BUGL og Sigurveig Mýrdal, deildarstjóri legudeilda BUGL.