Marta Jónsdóttir tók við sem formaður hjúkrunarráðs Landspítala 1. nóvember 2017. Hún tók við af Guðríði Kristínu Þórðardóttur sem hafði gegnt formennskunni í þrjú ár.
Hjúkrunarráð Landspítala starfar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu (nr. 40/2007) en í því eiga sæti allir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður spítalans.
Hlutverk hjúkrunarráðs er meðal annars að vera faglegur, ráðgefandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður Landspítala og stjórnendur hans. Hjúkrunarráð á frumkvæði að og er vettvangur umræðna um hjúkrun innan stofnunar og utan. Hjúkrunarráð hvetur til þess að hjúkrun á Landspítala sé byggð á gagnreyndri þekkingu þar sem markmiðið er að veita árangursríka hjúkrun.
Marta útskrifaðist með BSc í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2010 og MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík í júní 2017. Hún vann á hjartadeild Landspítala með námi til 2012, síðan á hjartaþræðingarstofu til 2014. Hún var aðstoðardeildarstjóri á meltingar- og nýrnadeild frá 2014-2016.
Frá hausti 2016 hefur Marta verið verkefnastjóri á menntadeild. Helstu verkefni hennar hafa verið námskeið sem miða að því að bæta öryggi og efla teymisvinnu meðal starfsfólks Landspítala.
Steinunn Ingvarsdóttir verkefnastjóri á lyflækningasviði er áfram varaformaður hjúkrunarráðs en Guðrún Yrsa Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur á meltingar- og nýrnadeild tók við sem ritari.