Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, var á nýafstöðnu þingi samtakanna „International Surgical Group“ í Jóhannesarborg í Suður-Afríku kosinn formaður samtakanna. Í þeim eiga sæti 140 prófessorar í skurðlæknisfræði víða að úr heiminum, flestir frá Bandaríkjunum og Bretlandi en líka frá Þýskalandi, annars staðar á Norðurlöndum, Kína, Japan og Brasilíu.
Markmið samtakanna er að efla rannsóknir og kynna nýjungar í skurðlæknisfræði og efla um leið tengslanet milli háskóla og háskólasjúkrahúsa um allan heim. Slíkt tengslanet þykir afar mikilvægt íslenskum skurðlæknum sem allir sækja framhaldsmenntun sína til annarra landa, oft á bestu háskólasjúkrahús austan hafs og vestan.
Á næsta ári verður þingi samtakanna haldið hér á landi en þá eru 60 ár frá stofnun þeirra.