Það stefnir í met í fjölda meðferða með steinbrjóti á Landspítala. Um 250 meðferðir við nýrnasteinum hafa verið árlega með steinbrjóti en þörfin hefur farið vaxandi. Árið 2016 voru yfir 340 meðferðir og Landspítali endurnýjaði steinbrjótstækið sumarið 2017. Steinbrjótstæknin felst í því að hljóðhöggbylgjum er safnað saman í lítinn punkt þar sem steinn er og sundrast hann við það án þess að beita þurfi opinni skurðaðgerð. Fyrir daga þessarar tækni voru opnar aðgerðir til að fjarlægja nýrnasteina algengustu aðgerðir þvagfæraskurðlækna en nú er þjónustan á göngudeildarformi og þjóðhagslegur ávinningur gríðarlegur þar sem ekki kemur þá til innlagnar.
Viðmælandi: Guðjón Haraldsson, sérfræðiilæknir á þvagfæraskurðdeild Landspítala.