Landspítali tekur 3. október 2017 upp nýtt verklag við móttöku og meðferð sjúklinga með brátt heilaslag. Markmiðið er að bæta horfur sjúklinga með brátt blóðþurrðarslag sem koma til meðferðar á spítalann.
Langalgengasta orsök blóðþurrðarslags er skyndileg stífla í slagæð vegna blóðsega sem stöðvar eðlilegt blóðflæði til heila. Slík blóðflæðiskerðing veldur fljótt varanlegri skemmd í heila. Við slík veikindi er meðferð sem miðar að enduropnun slagæðarinnar eins fljótt og unnt er algjört lykilatriði. Meðferðin felur í sér að blóðseginn er leystur upp eða fjarlægður til að koma aftur á eðlilegu blóðflæði. Slík meðferð minnkar varanlegan skaða og fötlun sjúklinga. Hægt er að veita slíka enduropnunarmeðferð með tvennu móti, annars vegar með gjöf segaleysandi lyfs í æð og hins vegar segabrottnámi með æðaþræðingu. Árangur beggja meðferða er mjög tímaháður, því fyrr sem meðferðin er veitt því minni skaði hlýst og betri verða horfur sjúklinganna.