Að líða vel í vinnunni er yfirskrift ráðstefnu kvenna og barnasviðs Landspítala Fjölskyldan og barnið 2017 sem verður á Grand hótel Reykjavík föstudaginn 29. september. Sjónum verður meðal annars beint að áskorunum sem fylgja starfinu, starfsandanum, svefni, vinnuaðstöðu, ímynd spítalans og notkun samfélagsmiðla. Ráðstefnan er þverfagleg og er fyrir starfsfólk sviðsins og annað fagfólk. Á ráðstefnunni eru kynntar rannsóknir og verkefni sem tengjast viðfangsefnum og starfsemi kvenna- og barnasviðs.