Kennsla í nýrri sérnámsleið lækna sem nefnist „Samþætt kjarnanám í bráðagreinum lækninga (SKBL)“ hófst þann 1. september 2017.
Tólf námslæknar byrja nú framhaldsnám í þessu framhaldsnámi, þar af tveir á Akureyri.
Námið er skipulagt samkvæmt breskri námsleið „Acute Care Common Stem (ACCS)“. Það tekur þrjú ár, gengur þvert á svið og munu námslæknar verja tíma í bráðalækningum, lyflækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum. Skipulag námsins er eins fyrstu tvö árin fyrir alla námslæknana en þriðja árinu er varið í þeirri sérgrein sem námslæknirinn sækist eftir.
Framhaldsnám í sérgreinum lækninga er mikilvægur hluti af starfsemi háskóla- og kennslusjúkrahúsa. Fram til þessa hafa læknar þurft að stunda sérnám að mestu leyti erlendis. Íslensk heilbrigðisþjónusta fær því ekki að njóta starfskrafta þeirra á meðan á sérnámi þeirra stendur, einmitt á þeim tíma sem ungir læknar eru að öllu jöfnu virkastir.
Með reglugerð frá árinu 2015 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi eru gerðar allt aðrar og meiri kröfur til umgjarðar sérnáms lækna en áður var. Í reglugerðinni er gert ráð fyrir að leitað sé alþjóðlegrar ráðgjafar við gerð marklýsinga og þess sé gætt að mæta alþjóðlegum gæðaviðmiðum. Allar megin sérgreinar lækninga hafa því lagt mikla vinnu í að endurskoða það sérnám sem unnt er að bjóða á Íslandi.
Stefnt er að því að læknar geti hafið formlegt sérnám í fyrri hluta (2-3 ár) í öllum megin sérgreinum lækninga á Landspítala eða Sjúkrahúsinu á Akureyri að loknu kandídatsári. Margar sérgreinar hafa leitað leiðsagnar til Bretlands enda er þar boðið upp á fyrri hluta sérnáms, með sérstakri marklýsingu, skráningarkerfi og prófum. Það er einmitt sú tímalengd sérnáms sem margir telja raunhæft að bjóða upp á í mörgum sérgreinum lækninga á Íslandi.
Námslæknum gefast einnig tækifæri til að taka þátt í vísindastarfi og má nefna að fjöldi sérnámslækna á Landspítala er nú jafnframt skráður í meistara- eða doktorsnám við Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir að sérnámslæknar taki í flestum tilvikum seinni hluta sérnámsins við viðurkennda stofnun erlendis.
Nú þegar hafa nokkrar sérgreinar fengið vottun mats- og hæfisnefndar til að bjóða framhaldsnám en aðrar eru langt komnar í því ferli.
Samþætt kjarnanám í bráðagreinum lækninga er skipulagt að breskri forskrift og unnið í nánu samstarfi við bresku sérgreinafélögin; „The Royal College of Anaesthetists“,„Royal College of Emergency Medicine“ og „Royal College of Physicians.“ Sérnámslæknar geta tekið bresku skriflegu prófin hér á landi undir umsjón Háskóla Íslands en klínísku prófin eru tekin í Bretlandi.
Töluverðan undirbúning hefur þurft til að koma náminu af stað, nú síðast með kennslunámskeiði Royal College of Anaesthetists aðra helgina í september fyrir sérfræðinga í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Undirbúningur sérnámsins hefur notið dyggilegs stuðnings framkvæmdstjórnar Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor er í forsvari fyrir Samþætt kjarnanám í bráðagreinum lækninga (SKBL). Með honum starfa kennslustjórar viðkomandi sérgreina, þeir Friðbjörn Sigurðsson, Hjalti Már Björnsson og Kári Hreinsson.
Ragnhildur Nielsen verkefnastjóri (ragnhn@landspitali.is) veitir frekari upplýsingar um námið .