Skipulag mannauðssviðs á Landspítala breyttist 1. september 2017. Á sviðinu hafa verið þrjú teymi; heilsuteymi, kjaraþróunarteymi og mönnunarteymi og teymisstjórar yfir hverju þeirra.
Framvegis verða þrjár deildir á mannauðssviði og deildarstjórar yfir þeim.
Kjaradeild - deildarstjóri er Aldís Magnúsdóttir aldism@landspitali.is |
Mönnunar- og starfsumhverfisdeild - deildarstjóri er Bára Hildur Jóhannsdóttir barajoha@landspitali.is |
Launadeild - deildarstjóri er Ottó Magnússon otto@landspitali.is |