Kæra samstarfsfólk,
Síðustu vikur hafa verið okkur þungbærar. Með stuttu millibili urðu tvö andlát á geðsviði Landspítala. Fjölskyldur og vinir eru í sárum og harmur þeirra mikill. Okkur á Landspítala er öllum brugðið.
Landspítali tilkynnir öll atvik af þessu tagi lögreglu og Embættis landlæknis. Það er sjálfstæð ákvörðun þessara embætta hvort frekari skoðunar eða rannsókna er þörf af þeirra hálfu. Hvað Landspítala varðar kalla slík atvik ávallt á sérstaka og ítarlega skoðun. Við munum flýta skoðun á þessum atvikum eftir því sem unnt er. Markmið slíkrar greiningar er að vinna að umbótum á starfi spítalans. Reyndar höfum við þegar hafið ákveðið úrbætur hvað húsnæði geðsviðs varðar, en aðrar úrbætur bíða niðurstöðu greiningar.
Sjálfsvíg eru alvarlegur lýðheilsuvandi, sem allar þjóðir heims glíma við. Forvarnir eru flóknar og umfangsmiklar, enda áhættuþættir margir. Þar langar mig sérstaklega til að nefna mikilvægi þess, að við hlúum betur að börnum okkar í uppvextinum. Snemmbær inngrip í fíknivanda eru til dæmis afar mikilvæg sem og meðferð geðsjúkdóma, svo eitthvað sé nefnt. Sjálfsvíg eru ekki tabú og við eigum að ræða þann vanda opinskátt á breiðum grunni og beina sjónum rakleiðis að orsökum og leiðum til forvarna.
10. september er einmitt alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum og þann dag gengst Geðhjálp ásamt Landspítala og fleirum fyrir kyrrðarstund í Dómkirkjunni. Daginn eftir halda sömu aðilar fræðslufund fyrir fagfólk. Aðalfyrirlesari er Dr. Lars Mehlum, en han er geðlæknir og forstöðumaður miðstöðvar um rannsóknir á sjálfsvígum og fyrirbyggjandi aðgerðir við Oslóarháskóla.
Landspítali gegnir lykilhlutverki í geðheilbrigðisþjónustu hér á landi. Þar sinnum við veikustu einstaklingunum með sama hætti og við sinnum veikustu sjúklingunum innan annarra sérgreina. Auk geðgjörgæsludeildar, legudeilda, samfélagsteyma, göngu- og dagdeilda bjóðum við bráðaþjónustu allan sólarhringinn. Þá þjónustu má nálgast í geðdeildarhúsi Landspítala við Hringbraut á virkum dögum frá 12 - 19 og 13-17 um helgar og helgidaga. Á öðrum tímum sólarhringsins er móttaka á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Mikilvægt er að árétta að þjónusta Landspítala er sambærileg, hvort sem leitað er á Hringbraut eða í Fossvog.
Hafið það gott um helgina, hvort heldur þið standið vaktina eða hlaðið batteríin.
Páll Matthíasson