Kári Hreinsson hefur verið ráðinn yfirlæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga Hringbraut til fimm ára, frá og með 1. september 2017.
Kári lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1994, fékk sérfræðingsleyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum árið 2000 og hefur lokið framhaldsnámi í sérhæfðri verkjameðferð.
Kári starfaði sem sérfræðilæknir á Salgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg að loknu sérnámi þar en kom til starfa á Landspítala árið 2002. Hann hefur verið virkur í kennslu lækna og hjúkrunarfræðinga og verið umsjónarmaður læknanema og deildarlækna í læknisfræðilegu grunnnámi á svæfinga- og gjörgæsludeildum auk þess að hafa yfirumsjón með skipulagningu sérfræðináms í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala í samvinnu við Royal College of Anaesthetists.
Kári hefur verið í stjórn Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands frá 2006, formaður þess frá 2008 og verið í undirbúningsnefndum árlegra þinga skurð- og svæfingalæknafélaganna á Íslandi frá 2006.