Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið halda fimmtudaginn 7. september 2017 sameiginlega ráðstefnu í tengslum við Globeathon, alþjóðlega átakið til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum.
Ráðstefnan verður að Skógarhlíð 8 í Reykjavík milli kl. 17:30 og 19:00. Allir velkomnir!
Dagskrá
Kl. 17:30 Setning ráðstefnunnar og kynning á Globeathon hugmyndinni. Sigrún Arnardóttir læknir og formaður Lífs styrktarfélags.
Kl. 17:35 Keiluskurður á leghálsi. Anna Þ. Salvarsdóttir kvensjúkdómalæknir.
Kl. 17:55 Meðferð við eggjastokkakrabbameinum. Katrín Kristjánsdóttir kvensjúkdómalæknir.
Kl. 18:15 Erfðaráðgjöf kvenna með BRCA gen. Vigdís Stefánsdóttir erfðafræðingur og erfðaráðgjafi.
Kl. 18:30 Reynsla mín sem BRCA arfberi. Hulda Bjarnadóttir fjölmiðlakona.
Kl. 18:45 Pallborðsumræður. Spurningar og svör
Kl. 19:00 Ráðstefnulok
Nánari upplýsingar veita Sigrún Arnardóttir (sigrunarnar@simnet.is) og Sóley Jónsdóttir (soley@krabb.is).
Globeahon hlaupið verður svo sunnudaginn 10. september.