Þætti vænt um að birta þessa frétt, en Landspítali er einn af samstarfsaðilum ráðstefnunnar. Kveðja Eygló Ingad. menntadeild.
Ráðstefnan Hjúkrun 2017 verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica dagana 28.-29. september 2017.
Á ráðstefnunni verða kynntar nýjustu rannsóknir innan hjúkrunar en einnig verða vinnusmiðjur, veggspjöld og vörukynningar. Gestafyrirlesari ráðstefnunnar er Dr. Tiny Jaarsma prófessor frá Linköping í Svíþjóð en hún er kunn m.a. fyrir rannsóknir sínar um öryggi sjúklinga og bættrar þjónustu til langveikra sjúklinga.