Jóhanna G. Þórisdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri á bráðageðdeild 32C á Landspítala frá 1. júní 2017.
Jóhanna lauk BSc.-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Hún er með MSc.-gráðu í lýðheilsuvísindum frá Nordic School of Public Health frá 2014 og lauk diplómagráðu í geðhjúkrun vorið 2017 frá Háskóla Íslands. Jóhanna hefur starfað við geðhjúkrun frá árinu 2003, bæði við Landspítala og á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg. Hún gegndi stöðu aðstoðardeildarstjóra á réttargeðdeild Landspítala frá 2014 til 2017.