Á árlegu golfmóti Securitas er ekki bara keppt í golfi heldur einnig nokkrum þrautum þar sem keppendur safna peningaupphæð í pott sem ánafnað er til góðgerðamála.
Í ár söfnuðust kr. 80.000. Vinningshafinn, Örn Sveinsson, ánafnaði verðlaunaupphæðina Barnaspítala Hringsins.
Jóhanna Guðbjörnsdóttir veitti upphæðinni viðtöku 28. júní 2017 fyrir hönd barnaspítalans. Þess má geta að Örn vann líka í keppninni í fyrra og ánafnaði þá verðlaunafénu einnig til barnaspítalans.
Á myndinni eru Sigurbjörg A. Guttormsdóttir, Hjörtur Freyr Vigfússon, markaðsstjóri Securitas, vinningshafinn Örn Sveinsson og Jóhanna Gubjörnsdóttir.