Þær sem geta boðið sig fram til þátttöku (fullorðnar konur eingöngu) eru á aldrinum 18-40 ára. Eru af íslenskum eða evrópskum uppruna. Nota ekki núna (eða hafa notað undanfarna þrjá mánuði) hormónagetnaðarvarnir eða steralyf. Eru ekki núna (eða hafa verið undanfarna þrjá mánuði) ófrískar eða með barn á brjósti. Eru ekki núna á sérstöku mataræði með það fyrir augum að léttast eða þyngjast. Stunda ekki núna þjálfun sem atvinnufólk í íþróttum (reglubundin líkamsrækt er hið besta mál).
Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari upplýsingar eða hafa áhuga á þátttöku í ofangreindri rannsókn geta fengið frekari upplýsingar hjá Guðrúnu Kr, verkefnastjóra RÍN (gks@hi.is - 543 8410) eða prófessor Virginia Vitzthum (vitzthum@indiana.edu - 649 7336).
Allar fyrirspurnir eru bundnar þagnarskyldu.