Helga Guðrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri skurðstofa á Landspítala Hringbraut frá 1. maí 2017 til fimm ára.
Helga Guðrún lauk BS prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands1988, diplómanámi frá HÍ í skurðhjúkrun 2005 og meistaranámi í hjúkrun HÍ 2008. Hún fékk sérfræðiréttindi í
skurðhjúkrun frá heilbrigðisráðuneytinu árið 2011.
Helga Guðrún hefur víðtæka reynslu sem hjúkrunarfræðingur frá útskrift. Hún starfaði á bráðamóttöku Landspítala og fleiri deildum spítalans. Hún var verkefnastjóri yfir rannsóknum
hjá dótturfyrirtæki Íslenskrar erfðagreiningar. Frá árinu 2003 hefur Helga Guðrún starfað sem hjúkrunarfræðingur á skurðstofum Landspítala og sem aðstoðardeildarstjóri á skurðstofum við Hringbraut frá 2009.
Hún hefur verið aðjúnkt við HÍ frá 2015 og hafði umsjón með diplómanámi í skurðhjúkrun í HÍ frá sama tíma. Hún hefur einnig sinnt stundakennslu við geislafræðideild HÍ og námsbraut við hjúkrunarfræði, ásamt verklegri kennslu og margs konar fræðsluerindum .
Helga Guðrún hefur verið virk í stjórn fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga. Hún á sæti í Evrópuráði skurðhjúkrunarfræðinga og situr í stjórn skandinavískra hjartaskurðhjúkrunarfræðinga og hefur starfað í ýmsum nefndum og ráðum tengt faginu.