Í geðdeildahúsinu við Hringbraut hefur verið komið fyrir Life Fitness hlaupabretti sem er gjöf aldraðs manns, Magna E. Guðmundssonar, sem kaus að þakka með þessum hætti fyrir þjónustu sem hann hefur notið á Landspítala.
Hann hafði keypt hlaupabrettið til eigin nota, með fororði um að geta skilað því ef það hentaði ekki. Vegna veikinda gat hann ekki notað hlaupabrettið en í stað þess að skila því bað hann seljandann að hafa milligöngu um að gefa spítalanum það. Hlaupabrettið var afhent formlega 17. maí 2017.
Mynd: Við nýja hlaupabrettið í geðdeildahúsinu við Hringbraut. Gunnar Aðalsteinn Gunnlaugsson, starfsmaður Hreysti, Kristín Birna Ólafsdóttir, íþróttafræðingur á Landspítala, Eggert Jónsson, eigandi Hreysti, og Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur á Landspítala.