Að jafnaði bíða milli 10 og 15 skjólstæðingar geðsviðs Landspítala eftir viðeigandi búsetuúrræðum. Skortur á viðeigandi húsnæði hamlar útskrift sjúklinga.
María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala, bendir á að heppilegra sé að sjúklingar sæki sína endurhæfingu á geðsviði frekar með komu á dag- og göngudeild og fari svo heim þess á milli.