Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri barnadeildar á Barnaspítala Hringsins á Landspítala frá og með 1. maí 2017 til næstu fimm ára.
Jóhanna Lilja lauk B.Sc. námi í hjúkrunarfræði og viðskiptafræði 1997 og meistaranámi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2014. Hún hefur unnið á barnadeildum Landspítala frá 1997, síðustu árin á dagdeild barna og þar áður á barnadeild.