Innleiðing á stigun sjúklinga með breskri aðferðafræði og mælitæki sem nefnist NEWS (National Early Warning Score) hefur staðið yfir á Landspítala frá því í mars 2017 og fyrirhugað er að henni ljúki núna síðla á vormánuðum. Stigun sjúklinga felst í því að greina áhættu sjúklinga út frá lífsmörkum og öðrum breytum með það að markmiði að gera áhættuna sýnilegri svo bregðast megi fyrr við og fyrirbyggja versnun með stigvaxandi eftirliti og viðbrögðum lækna og hjúkrunarfræðinga.
Viðmælendur í þessu myndskeiði: Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, Lovísa Baldursdóttir, sérfræðingur í gjörgæsluhjúkrun, og Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga.