Ágrip sem fjallaði um fjölskyldutengsl í lifrarsjúkdómnum Primary Biliary Cholangitis (PBC) var valið til kynningar á því sem helst þótti sæta tíðindum á Ameríska meltingarlæknafundinum í Chicago (Digestive Disease Week (DDW)) í maíbyrjun 2017. Ágripið var eitt af átta frá Landspítala en framlag spítalans fólst einnig í tveimur fyrirlestrum (oral presentations), þar af voru þrír læknanemar og tveir unglæknar með kynningar.