Maríanna Bernharðsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri fíknigeðdeilda geðsviðs frá 8. maí 2017. Hún tók við starfinu þann dag.
Maríanna lauk BS prófi í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri árið 2000. Hún lauk diplóma í geðhjúkrun árið 2006 frá Háskóla Íslands. Maríanna mun ljúka meistaraprófi í mannauðsstjórnun við HÍ sumarið 2017. Hún hefur starfað sem aðstoðardeildarstjóri á réttargeðdeild Landspítala, göngudeild geðsviðs og nú síðast á bráðageðdeild spítalans.