Vika hjúkrunar 2017 er 8. til 12. maí.
Dagskráin er sem fyrr hlaðin áhugaverðum viðburðum eins og málþingum, kaffihúsaviðburðum, vinnusmiðjum, fyrirlestrum, skemmtiviðburðum og fleiru.
Skipulagðir hafa verið viðburðir í samvinnu við menntadeild, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, læknaráð og Sjúkrahúsið á Akureyri.
Um 50 veggspjaldakynningar munu prýða ganga spítalans þar sem hjúkrunarfræðingar og ljósmæður kynna störf sín, umbætur og rannsóknir. Veggspjöldin munu hanga uppi til 22. maí.
Nánari upplýsingar og dagskrá viðburða | >>
.