Keppendur um besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema á sameiginlegu vísindaþingi lækna og hjúkrunarfræðinga á skurð-, fæðingar- og gjörgæsludeildum árið 2017 ásamt Engilbert Sigurðssyni, prófessor og deildarforseta læknadeildar HÍ, sem var formaður dómnefndar. Frá vinstri Elva Dögg Brynjarsdóttir, deildarlæknir á Landspítala, læknanemarnir Hilda Hrönn Guðmundsdóttir, Klara Guðmundsdóttir og Þórður Páll Pálsson og Guðrún María Jónsdottir, deildarlæknir á Landspítala.
Klara Guðmundsdóttir, læknanemi á 6. ári, varð hlutskörpust í keppni um besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema á sameiginlegu vísindaþingi lækna og hjúkrunarfræðinga á skurð-, fæðingar- og gjörgæsludeildum sem var haldið helgina 31. mars til 1. apríl 2017 í Hörpu.
Þingið þótti takast sérlega vel en hátt í 300 læknar, hjúkrunarfræðingar og læknanemar tóku þátt í því. Hápunkturinn var að venju árleg keppni um besta vísindaerindið en keppt er um verðlaun sem kennd eru við Jónas Magnússon, fyrrverandi prófessor. Keppnin var hnífjöfn að þessu sinni og gerður góður rómur að öllum erindunum.
Verkefni Klöru fjallar um miðþekjuæxli (mesothelioma) í fleiðru og lungum og var unnið undir handleiðslu Tómasar Guðbjartssonar, prófessors við hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala.