„Hluti af heild: Fjölskyldan og alvarleg veikindi“ er yfirskrift námskeiðs Lífsins, samtaka um líknarmeðferð sem verður haldið 26. apríl 2017 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Lífið, samtök um liknarmeðferð, hafa að markmiði að efla líknarmeðferð á Íslandi. Árlega standa samtökin að námskeiði með mismunandi áherslum.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á líknarmeðferð og eru að sinna mikið veikum og langveikum.