Um 67 þúsund manns hafa skráð sig til þátttöku í átakinu „Blóðskimun til bjargar“ sem hófst formlega 15. nóvember 2016 og skráning stendur enn yfir.
Þetta er viðamesta rannsókn sem ráðist hefur verið í hér á landi, þjóðarátak gegn mergæxlum. Öllum fæddum 1975 eða fyrr er boðið að taka þátt í þessu samstarfsverkefni Landspítala, Háskóla Íslands og Krabbameinsfélags Íslands. Að auki eru flestar rannsóknarstofur og blóðtökustaðir á Íslandi hluti af samstarfinu og þannig er leitast við að tryggja að allir sem vilja vera með í þessu umfangsmikla verkefni, hvar sem er á landinu, geti það.
Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort ávinningur sé af því að skima fyrir forstigi mergæxlis (MGUS). Árangur rannsóknarinnar byggist á góðri þátttöku en þannig er vonast til þess að fá fá svör við fjölmörgum mikilvægum spurningum, meðal annars um orsakir mergæxla, ávinning skimunar, besta greiningarferli og áhrif krabbameinsleitar og skimunar á lífsgæði fólks.
Í myndskeiðinu er rætt við Sigurð Yngva Kristinsson, lækni og prófessor.