Enn þarf að grípa til þess að forgangsraða sjúklingum á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi eftir bráðleika vegna mikils álags.
Gera má ráð fyrir því að þeir sem ekki eru í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða að þeim verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina að forflokkun lokinni.
Flestar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu hafa opna síðdegismóttöku og Læknavaktin á Smáratorgi er opin til kl. 23:00.