Hafin er íslenskukennsla á Landspítala eftir nokkurt hlé. Námskeiðið er í samstarfi við Mími símenntun og er 60 tímar en kennt er tvisvar í viku í 10 vikur. Með þessum hætti er stuðlað að aðlögun fólks bæði í samfélaginu og á vinnustað.
Viðmælendur.
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóra mannauðssviðs
Sólveig Jónsdóttir, verkefnastjóra hjá Mími símenntun
Artiana Mocka lífeindafræðingur
Subhash Shannon John krabbameinslæknir