Ólafía Svandís Grétarsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri sýkla- og veirufræðideildar frá og með 1. mars til næstu 5 ára. Svandís er lífeindafræðingur að mennt og hefur starfað samfellt á sýklafræðideild frá árinu 2003 og frá árinu 2009 sem staðgengill yfirlífeindafræðings. Ásamt störfum sínum á Landspítala hefur hún einning verið stundakennari við Háskóla Íslands.
Leit
Loka