Allir háskólar landsins ásamt opinberum rannsóknarstofnunum og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti stóðu þann 27. janúar 2017 að stofnun „Auðnu“, undirbúningsfélags um stofnun sameiginlegrar tækniyfirfærsluskrifstofu eða tækniveitu fyrir Ísland. Stefnt er að stofnun tækniveitunnar í byrjun árs 2018.
Erlendar og innlendar úttektir á nýsköpunarumhverfinu hérlendis hafa bent á skort á tækniyfirfærslu (technology transfer) úr háskólum og rannsóknarstofnunum sem veikan hlekk í nýsköpunarkeðjunni. Tækniveitunni er ætlað að vera brú á milli rannsókna og nýsköpunar sem kemur verðmætum ávöxtum vísinda og þekkingar áleiðis til samfélagsins. Tækniveitan mun leggja faglegt mat á uppfinningar vísindamanna, sinna hugverkavernd og hugverkastjórnun og fylgja verkefnum eftir í hendur fjárfesta, frumkvöðla og atvinnulífsins innanlands sem erlendis. Sameiginleg tækniveita fyrir Ísland getur gegnt mikilvægu hlutverki í að virkja betur vísindin, styrkja nýsköpun, efla atvinnulíf og þar með samkeppnishæfni þjóðarinnar.
Á meðfylgjandi mynd frá stofnfundi Auðnu eru fulltrúar margra þeirra stofnana sem koma að undirbúningsfélaginu; Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Landspítala, Háskólans á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Bifröst, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Matís, Hafrannsóknastofnunar, Landgræðslu ríkisins, Vísindagarða HÍ og atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytisins. Fulltrúa Listaháskóla Íslands og Háskólans á Hólum vantar á myndina.
Framkvæmdastjóri Auðnu er Einar Mäntylä.