Krabbameinslækningadeild 11E á Landspítala hefur verið afhentur að gjöf mjög fullkominn hægindahjólastól frá Stoð. Gefandi er Bárður Sigurgeirsson og er þakklætisvottur í minningu Jennýjar Axelsdóttur sem lá á deildinni í tæpt ár vegna veikinda sinna.
Fjölmenni var í K-byggingu þegar gjöfin var formlega afhent 3. febrúar 2017. Bárður ávarpaði gestina og í kjölfarið söng Valgerður Guðnadóttir söngkona tvö lög.