Matís ehf og rannsóknarstofa í öldrunarfræðum (RHLÖ) á Landakoti óska eftir þátttakendum í rannsókn sem hefur að markmiði að kanna áhrif blöðruþangs á bólguþætti hjá of þungum, fullorðnum einstaklingum og hvort blöðruþang hafi áhrif á aðrar lífeðlisfræðilegar breytur (blóðsykur og blóðfitur)
Rannsóknin hefur hlotið hefur samþykki Vísindasiðanefndar.
Þátttakendur í rannsókninni þurfa að vera fullorðnir einstaklingar, 40 ára og eldri, með líkamsþyngdarstuðul (BMI) ≥ 27 kg/m2 (sjá töflu með útreiknuðum líkamsþyngdarstuðli hér að neðan) og mittisummál ≥ 88cm hjá konum og ≥ 102 cm hjá körlum. Þátttakendur sem stunda hreyfingu meira en 30 mín/dag eru útilokaðir frá þátttöku sem og þungaðar konur eða konur með barn á brjósti. Einstaklingar sem hafa samband og hafa áhuga að taka þátt í rannsókninni þurfa að draga úr neyslu á matvælum sem innihalda omega-3 og forðast lýsi í 2 vikur áður en íhlutun hefst og meðan á þátttöku stendur.
Ekki er greitt fyrir þátttöku.
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Alfons Ramel, prófessor við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands (alfonsra@hi.is; sími 543 9875).
Aníta Sif Elídóttir, næringarfræðingur og starfsmaður á matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, hjálpar við framkvæmd rannsóknarinnar.
- Þátttakendum verður af handahófi skipt upp í tvo hópa sem fá annað hvort :
a) Blöðruþangsduft (3 hylki = 1200 mg/dag) í 10 vikur b) Lyfleysu duft (3 hylki/dag) í 10 vikur. - Þátttaka í rannsókninni felst í því að mæta í byrjun og lok tímabils í líkamsmælingar og lífssýnatöku ásamt því að svara almennum spurningalista um mataræði og heilsufar við upphaf rannsóknar.
Framkvæmdar verða mælingar á líkamssamsetningu, mittisummáli, hæð og þyngd. Helstu mælingar í blóði eru bólguþættir, blóðsykur og fitur í blóði. - Blöðruþang (Fucus vesiculosus) er ríkt af joði, ómeltanlegri sterkju, salti og lífvirkum efnum. Blöðruþangsduft verður til þegar ákveðin lífvirk efni eru dregin út úr blöðruþanginu og einangruð. Þessi lífvirku efni eru sett í hylki úr gelatíni til að auðvelda inntöku. Notkun á blöðruþangi til manneldis er þekkt og rannsóknir á lífvirkum efnum í blöðruþangi benda til þess að duft úr blöðruþangi gæti haft jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilegar breytur (bólguþætti og blóðsykur).
Ég vil taka þátt!
Áhugasamir sem uppfylla ofangreind skilyrði hafi samband við Anítu Sif Elídóttur í síma 844 7131 eða sendi tölvupóst á anitas@landspitali.is.