Árið 2016 voru 1.755 nemendur skráðir í nemaskráningarkerfi Landspítala. Nemendur í námi á framhaldsskólastigi voru 335, háskólanemendur í grunnnámi 984 og háskólanemendur í framhaldsnámi 436. Erlendir nemendur voru 114 talsins.
Sjá nánar hér
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga. Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu.
Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en nemendur koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann.
Nemendur hafa verið skráðir í nemaskráningarkerfið síðan árið 2010:
Ár Fjöldi nemenda
2010 1193
2011 1359
2012 1532
2013 1530
2014 1607
2015 1612
2016 1755
Nemendum fjölgar hægt og sígandi. Fjölgunin undanfarin ár er þó fyrst og fremst rakin til vakningar á mikilvægi skráningarinnar.
Upplýsingar varðandi skráningu nema, gátlisti, þagnarskylduskjöl o.fl.
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur (Englisth)
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál veitir
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild Landspítala,
netfang sigruni@landspitali.is, sími 543 1475.