Málþing til heiðurs Þóru I. Árnadóttur sem lét af störfum sem deildarstjóri á gigtar- og almennri lyflækningadeild B7 í nóvember, eftir rúmlega 30 ára starf ,verður haldið í Hringsal á Landspítala Hringbraut 13. janúar 2017, kl. 13:00 til 15:00.
Samstarfsmenn hennar líta yfir farinn veg og fjalla meðal annars um breytingar í meðferð gigtsjúklinga á undanförnum árum.
Málþinginu stýrir Gyða Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur
Dagskrá:
Málþing sett:
Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
Þjónandi forysta:
Laura Sch Thorsteinsson hjúkrunarfræðingur verkefnastjóri hjá Embætti Landlæknis.
Þverfaglegt samstarf öllum til góðs; vísindastarf:
Kristján Erlendsson læknir.
… og árin liðu:
Elínborg Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur
Kaffiveitingar
Allir eru velkomnir.